Vísir
5. Janúar 2026
„Árið 2018 tók ég þátt í samkeppni um hagkvæmt húsnæði, við vorum lítill hópur sem tók þátt í þessu og unnum. Þar með máttum við velja okkur eina af sjö eða átta lóðum í Reykjavík og völdum Skerjafjörðinn sem var lengst kominn í skipulagi og átti að ganga tiltölulega hratt.“
Þetta segir Pétur Hafliði Marteinsson við mbl.is, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og markaðsstjóri hugbúnaðarfyrirtækisins OZ Sport sem auk þess rekur Kaffihús Vesturbæjar ásamt Gísla Marteini Baldurssyni sjónvarpsmanni.
Hjá Pétri stendur nú prófkjör Samfylkingarinnar fyrir dyrum þar sem hann gefur kost á sér í oddvitasæti og mun þar etja kappi við Heiðu Björg Hilmisdóttur, borgarstjóra og núverandi oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík.
Um það var fjallað á Heimildinni nú í ársbyrjun að félag í eigu Péturs hefði fengið úthlutað lóðum í Skerjafirði árið 2019 þar sem til standi að byggja 72 íbúðir sem ágreiningur sé um. Pétur hefði því hagsmuni af úrslitum málsins hjá borginni en það bar hann til baka við Heimildina og sagði Miðbæjareignir hafa tekið félag hans yfir fyrir tveimur árum.
„Við fórum í það [í kjölfar samkeppninnar árið 2018] að vinna þetta, réðum til okkar arkitekta, verkfræðinga og fleiri sérfræðinga til þess að gera þetta eins fínt og mögulegt er fyrir ungt fólk sem er að fara inn á húsnæðismarkaðinn,“ segir Pétur við mbl.is.

Pétur tók þátt í verðlaunasamkeppni um hagkvæmt húsnæði í Reykjavík árið 2018 og hópur sem hann vann með að því máli bar sigurorð úr býtum. Félag í eigu hans fékk úthlutað lóðum í Skerjafirði árið 2019 en Miðbæjareignir tóku það félag yfir er halla tók undan fæti.
Hvorki fjárhagslegir hagsmunir né aðrir
Tafir hafi svo orðið á verkefninu eftir að hluthafar voru komnir inn í hópinn „og að lokum vorum við hálfpartinn að missa þetta þannig að hluthafarnir tóku yfir húsnæðisverkefnið. Ég á engra hagsmuna að gæta þarna lengur, þetta fór bara í hendurnar á þeim sem munu gera þetta mjög vel. Ég á hvorki fjárhagslega né aðra hagsmuni af þessu verkefni en vil hins vegar sjá að þetta hverfi rísi, ég held að þetta geti orðið fínasta hverfi og við ræðum það örugglega síðar en það er seinni tíma mál,“ segir Pétur og er inntur eftir kveikjunni að ákvörðun sinni um prófkjörið.
„Kveikjan á sér mjög stuttan aðdraganda,“ svarar hann. „Ég hef lengi óttast að Samfylkingin muni tapa kosningunum í vor verði ekki einhverjar breytingar. Ég fór að fá einhverjar hvatningar rétt fyrir jól, fékk nokkur símtöl,“ segir hann og ljóstrar því upp að þar hafi einn hvatamaður vegið sérstaklega þungt.
„Logi Pedro Stefánsson [tónlistarmaðurinn kunni] hafði samband við mig og ég hélt bara að þetta væri eitthvert rugl, ég hef hvergi og aldrei mátað mig við einhvers konar embætti. Þá fór ég í kjölfarið að heyra aðeins í fólki og spjalla við fjölskylduna og hugsaði svo með mér að núna væri kannski lag til þess að geta haft áhrif og vonandi ná góðum úrslitum í kosningunum í vor,“ segir Pétur og kveðst hafa fundið – er hann tók að velta stöðunni fyrir sér – að hann brynni fyrir borgina.

Logi Pedro Stefánsson var meðal þeirra sem komu að máli við Pétur um prófkjörið. mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir
Íslenskt samfélag úr fjarlægð
„Mér finnst Reykjavík frábær borg en þar er þó ýmislegt sem má bæta og ég vil ekki að einhver allt önnur leið sé farin í Reykjavík en nú hefur verið gert, það þarf bara að bæta ýmislegt,“ heldur Pétur áfram og segist að lokinni ígrundun hafa ákveðið að slá til og bjóða fram sína krafta.
Þú ert Breiðhyltingur að uppruna, á búseta þín þar hlut að máli?
„Allt hefur áhrif auðvitað. Ég gekk í Hólabrekkuskóla og ég var í fótboltanum, hef búið í Stokkhólmi og Ósló og ég bjó í Boston [í Bandaríkjunum] og á Englandi,“ svarar Pétur. „Að horfa á íslenskt samfélag úr fjarlægð hefur bæði gert mig gagnrýnni á það auk þess sem ég hef komið auga á hvað betur megi gera þar,“ heldur hann áfram og segir Reykjavík að flestu leyti mjög samkeppnishæfa borg.
„Mér finnst borgin kannski hafa verið töluð svolítið niður, hún er miklu betri núna en þegar ég var í Hólabrekkuskóla í gamla daga. Auðvitað eru áskoranir en líka fullt af tækifærum,“ segir prófkjörskandídatinn verðandi.
Hvað myndirðu helst vilja færa til betri vegar?
„Mér finnst að borgir þurfi alltaf að stefna eitthvað, besta samfélagið er samfélag þar sem fólk þarf ekki að hugsa um pólitík, hlutirnir virka bara, snjórinn er mokaður, göturnar eru sópaðar og ruslið er tekið, þér bara líður eins og allt sé í lagi. Ef þú býrð langt frá vinnustaðnum þínum, ert að fara í vinnuna og situr í bíl í 45 mínútur þá hugsarðu borgarstjórn auðvitað þegjandi þörfina, þér finnst borgin hafa klúðrað einhverju, eins og þegar snjórinn er ekki mokaður eða þú ert með barn á leikskóla og hann er alltaf lokaður, þú getur ekki treyst á leikskólana,“ segir Pétur.

Pétur segir Reykjavík mjög samkeppnishæfa borg og fulla af tækifærum.
Oft verið handan borðsins
Þjónusta fyrir íbúana sé eitt en jafnframt kveðst hann hafa fleiri mál í sínum handraða, „sem ég efast um að séu flokkspólitísk mál. Þjónustan við fólk þarf að vera í lagi og þá held ég að þurfi að einfalda reksturinn. Ég hef oft verið hinum megin við borðið og verið að opna kaffihús og veitingastaði sem hefur verið svolítið þungt, maður veit ekki alltaf við hverja maður á að tala, og þarna finnst mér að einfalda þurfi kerfin fyrir þá sem á þurfa að halda, bæta þjónustuna og einfalda hana,“ segir hann að auki.
Þú gefur kost á þér í oddvitasæti og gætir þar með fræðilega séð orðið borgarstjóri Reykjavíkur. Hvað telurðu þig hafa til brunns að bera umfram sitjandi borgarstjóra?
„Ég verð að taka það fram að mér finnst Heiða hafa staðið sig vel í erfiðri stöðu, Dagur [B. Eggertsson fyrrverandi borgarstjóri], var kóngur í borginni í tólf ár og svo tekur Einar Þorsteinsson við og það fór eins og það fór. Heiða tók við meirihlutanum á síðasta ári og mér finnst hún hafa staðið sig vel en núna fyrir kosningarnar í vor mun hún þurfa að verja ýmislegt sem hefur gengið illa og það er alltaf erfitt að taka við eftir Alex Ferguson [knattspyrnustjóra enska knattspyrnuliðsins Manchester United frá 1986 til 2013], það hefur sýnt sig. Ef hún sigrar í prófkjörinu núna held ég að hún komi sterkari til leiks,“ segir Pétur.

Pétur telur Heiðu Björg hafa staðið sig vel en erfitt sé að taka við af Alex Ferguson þar sem hann vísar til Dags B. Eggertssonar sem hann segir hafa verið kóng í borginni í tólf ár.
Hann komi hins vegar með allt aðra reynslu inn í slaginn, „ég hef ekki verið stjórnmálamaður og ekki verið í flokkspolitísku starfi áður en ég kem með reynslu frá hinni hlið borðsins, ég hef verið að „díla“ við Reykjavíkurborg og búið í nokkrum öðrum löndum og ég kem með aðra sýn á þessi mál, ég kem úr umhverfi íþrótta, er keppnismaður og liðsmaður, og maður spyr auðvitað fólk í stærsta flokknum hvað það vilji,“ segir Pétur Hafliði Marteinsson að lokum.
Atli Steinn Guðmundsson



